|
Ískórinn – skemmtilegur og opinn félagsskapur í 20 ár |
|
|
Skrifađ af Margret Gunnarsdottir
|
|
Tuesday, 01 June 2010 |
|
Ískórinn er blandaður áhugamannakór og erum við sífellt á höttunum eftir nýjum meðlimum, bæði konum og körlum, stelpum og strákum. Það eru ekki gerðar stórar kröfur til sönghæfileika eða fyrri reynslu, þó það séu vissulega kostir sem gott er að búa yfir. Kórstjórinn er hæfileikaríkur Norðmaður, Ketil Grøtting að nafni, sem hefur á fyrsta ári sínu með kórnum náð fram fallegum hljómi og tekist að viðhalda þeim góða anda sem einkennir Ískórinn.
Kórinn hefur orð á sér fyrir að taka nýjum meðlimum opnum örmum, eins og lesa mátti um á heimasíðu eins fyrrum meðlims: „Ég var komin til að vera með í stutta stund og ekki kvöð á neinum að kynnast mér sérstaklega eða láta mig að fullu verða hluta af hópnum. Það er greinilega ekki stíll Ískórsins því aldrei hefur mér verið eins vel tekið í nýjum hópi og aldrei hefur mér tekist að kynnast jafn mörgum á svona stuttum tíma. Venjulega tekur það mig langan tíma að kynnast fólki og finnast ég vera hluti af hópi en í Ískórnum gerðist það bara næstum því strax. Mér leið eins og ég hefði alltaf verið með.” Þá má ekki gleyma því að innan kórsins hafa sumir fundið ástina og eru það ekki síðri meðmæli!
Dagskrá komandi vetrar er hlaðin viðburðum. Á haustönninni ber hæst afmælistónleika og afmælishátíð Ískórsins sem verður 20 ára í ár. Tónleikarnir verða 1. nóvember í Tøyen kirkju og ætla fyrri kórstjórnendur að heiðra okkur með nærveru sinni, sveifla sprotum og stjórna lögum frá sinni stjórnartíð. Undirbúningur mun meðal annars felast í æfingaferð í hús Íslendingafélagsins í Norefjell í október. Mánaðarlega syngur kórinn í messum safnaðarins og hefur nokkrum sinnum undanfarin ár lagt land undir fót og sungið í messum úti á landi. Komin er hefð á þátttöku kórsins í listahátíðinni Elvelangs i fakkellys sem haldin er í lok september við Akerselva í Osló. Á Aðventukvöldi syngur kórinn vandaða jóladagskrá með góðum gestum. Mikil tilhlökkun ríkir innan kórsins vegna komandi vorannar því þá fer Ískórinn til Stokkhólms í lok mars. Þar verður haldið kóramót Íslendingakóra Norðurlandanna og Lundúna, ógleymanlegar hátíðir sem haldnar eru annað hvert ár á mismunandi stöðum. Dagskrá vetrarins lýkur svo með vortónleikum.
Við vonumst til að sjá sem flest ný andlit á æfingum næstu vikurnar.
f.h. stjórnar Ískórsins
Sigríður Gísladóttir, ritari.
|