Um kórinn:

 

Ískórinn er blandaður áhugamannakór og erum við sífellt á höttunum eftir nýjum meðlimum, bæði konum og körlum, stelpum og strákum. Það eru ekki gerðar stórar kröfur til sönghæfileika eða fyrri reynslu, þó það séu vissulega kostir sem gott er að búa yfir. Kórstjórinn er hæfileikaríkur Norðmaður, Ketil Grøtting að nafni, sem hefur á síðustu árum með kórnum náð fram fallegum hljómi og tekist að viðhalda þeim góða anda sem einkennir Ískórinn.

Kórinn hefur orð á sér fyrir að taka nýjum meðlimum opnum örmum, eins og lesa mátti um á heimasíðu eins fyrrum meðlims: „Ég var komin til að vera með í stutta stund og ekki kvöð á neinum að kynnast mér sérstaklega eða láta mig að fullu verða hluta af hópnum. Það er greinilega ekki stíll Ískórsins því aldrei hefur mér verið eins vel tekið í nýjum hópi og aldrei hefur mér tekist að kynnast jafn mörgum á svona stuttum tíma. Venjulega tekur það mig langan tíma að kynnast fólki og finnast ég vera hluti af hópi en í Ískórnum gerðist það bara næstum því strax. Mér leið eins og ég hefði alltaf verið með.” Þá má ekki gleyma því að innan kórsins hafa sumir fundið ástina og eru það ekki síðri meðmæli!

Ískórinn æfir einu sinni í viku, á fimmtudögum milli 18:00-20:30 í Lakkegate skole, Lakkeg. 79, 0562 Oslo.

 

 

iskorinn.com © 2007 • Privacy Policy • Terms of Use